
Vinnuumhverfi
Þetta tæki uppfyllir skilyrði um leyfileg mörk útvarpsbylgna (RF) við notkun
annaðhvort í hefðbundinni stöðu við eyrað eða þegar það er haft að minnsta
kosti 1,0 sentimetri (3,8 tommur) frá líkamanum. Ef taska, beltisklemma eða hald
er notað þegar tækið er borið á réttan hátt á líkamanum ætti slíkur búnaður ekki
að innihalda málm og halda ætti tækinu að minnsta kosti í þeirri fjarlægð frá
líkamanum sem nefnd var hér á undan.
Til að hægt sé að senda gagnaskrár eða skilaboð þarf þetta tæki góða tengingu
við símkerfið. Í sumum tilvikum getur sending gagna eða boða tafist þar til slík
tenging er tiltæk. Tryggja skal að ofangreindum fjarlægðarfyrirmælum sé fylgt
þar til sendingu er lokið.