Nokia 7210 Supernova - Sprengifimt umhverfi

background image

Sprengifimt umhverfi

Slökkva skal á tækinu á svæðum þar sem hætta er á sprengingum og fara að öllum

tilmælum sem sjást á skiltum og leiðbeiningum. Sprengifimt andrúmsloft telst

vera á svæðum þar sem yfirleitt er beðið um að drepið sé á vél bifreiðar. Neistaflug

á slíkum svæðum getur valdið sprengingu eða eldi og haft í för með sér slys og

jafnvel dauðsföll. Slökkva skal á tækinu á eldsneytisstöðvum, svo sem við

eldsneytisdælur á bensínstöðvum. Virða skal takmarkanir á notkun

útvarpsbúnaðar í eldsneytisgeymslum, svæðum þar sem geymsla og dreifing

eldsneytis fer fram, efnaverksmiðjum eða þar sem verið er að sprengja. Svæði

þar sem sprengihætta er mikil eru oftast vel auðkennd, en þó ekki alltaf. Þau eru

m.a. neðri þilför skipa, aðstaða til efnaflutninga eða geymslu og svæði þar sem

efni líkt og korn, ryk eða málmagnir eru í lofti. Þú ættir að kanna það hjá

framleiðendum farartækja sem nota jarðgas (líkt og própan eða bútan) til að

ákvarða hvort hægt sé að nota þetta tæki á öruggan hátt nálægt þeim.

Viðbótaröryggisupplýsingar

© 2008 Nokia. Öll réttindi áskilin.

54