Nokia 7210 Supernova - Lækningatæki

background image

Lækningatæki

Notkun búnaðar sem sendir frá sér útvarpsbylgjur, þar með talin notkun

þráðlausra síma, kann að trufla virkni lækningatækja sem ekki eru nægilega vel

varin. Hafa skal samband við lækni eða framleiðanda lækningatækisins til þess

að komast að því hvort það sé nægilega vel varið fyrir utanaðkomandi

útvarpsbylgjum eða til að afla nánari upplýsinga. Slökkva skal á tækinu í námunda

við heilsugæslustöðvar ef auglýstar reglur þess efnis kveða á um að það sé gert.

Sjúkrastofnanir eða heilsugæslustöðvar kunna að nota búnað sem getur verið

næmur fyrir utanaðkomandi útvarpsbylgjum.