Nokia 7210 Supernova - Ökutæki

background image

Ökutæki

Útvarpsbylgjur kunna að hafa áhrif á rafeindakerfi í vélknúnum ökutækjum, séu

þau ekki rétt upp sett eða ekki nægilega varin, svo sem rafeindastýrða

eldsneytisgjöf, rafeindastýrð hemlakerfi (með læsivörn), rafeindastýrð

hraðakerfi og loftpúðakerfi. Nánari upplýsingar má fá hjá framleiðanda bílsins

eða búnaðarins sem bætt hefur verið við eða fulltrúa hans.
Aðeins á að fela fagmönnum að gera við tækið eða setja tækið upp í ökutæki.

Gölluð uppsetning eða viðgerð kann að valda hættu og ógilda hvers kyns ábyrgð

sem kann að vera á tækinu. Ganga skal reglulega úr skugga um að allur þráðlaus

tækjabúnaður í ökutækinu sé rétt uppsettur og vinni rétt. Ekki má geyma eða

flytja eldfima vökva, lofttegundir eða sprengifim efni í sama rými og tækið, hluta

úr því eða aukahluti með því. Ef ökutæki er búið loftpúða skal hafa hugfast að

loftpúðar blásast út af miklum krafti. Ekki má setja hluti, þar með talinn uppsettan

eða færanlegan þráðlausan búnað, á svæðið yfir loftpúðanum eða á útþenslusvið

loftpúðans. Ef þráðlaus búnaður í bíl er illa settur upp og loftpúðinn þenst út getur

slíkt orsakað alvarleg meiðsl.
Notkun tækisins meðan á flugi stendur er bönnuð. Slökkva skal á tækinu áður en

gengið er um borð í flugvél. Notkun þráðlausra fjarskiptatækja í flugvél getur

skapað hættu við stjórn flugvélarinnar, rofið þráðlaust símasamband og verið

ólöglegt.