
Umhirða og viðhald
Í tækinu fer saman frábær hönnun og flókin tækni sem fara þarf gætilega með.
Eftirfarandi leiðbeiningar hjálpa til við að halda tækinu í ábyrgð.
● Halda skal tækinu þurru. Úrkoma, raki og hvers kyns vökvar geta innihaldið
steinefni sem tæra rafrásirnar. Ef tækið blotnar skal fjarlægja rafhlöðuna og
leyfa því að þorna alveg áður en rafhlaðan er sett í það aftur.
● Ekki skal nota tækið á rykugum og óhreinum stöðum né geyma það þar.
Færanlegu hlutirnir og rafrænir hlutar þess geta skemmst.
● Ekki skal geyma tækið á heitum stað. Hátt hitastig getur dregið úr endingu
rafeindatækja, skemmt rafhlöður og undið eða brætt sum plastefni.
Umhirða og viðhald
© 2008 Nokia. Öll réttindi áskilin.
51

● Ekki skal geyma tækið á köldum stað. Þegar tækið hitnar upp að eðlilegu
hitastigi getur raki myndast innan í því og hann getur skemmt rafrásaspjöld.
● Ekki skal reyna að opna símann öðruvísi en tilgreint er í þessari handbók.
● Tækinu skal ekki henda, ekki skal banka í það eða hrista það. Óvarleg meðferð
getur skemmt innri rafrásarspjöld og fíngerðan búnað.
● Ekki skal nota sterk efni, leysiefni til hreingerninga eða sterk hreinsiefni til þess
að þrífa tækið.
● Ekki skal mála tækið. Málningin getur fest hreyfanlega hluti tækisins og komið
í veg fyrir að þeir vinni rétt.
● Nota skal mjúkan, hreinan, þurran klút til að hreinsa linsur, líkt og
myndavélar-, fjarlægðarnema- og ljósnemalinsur.
● Aðeins skal nota loftnetið sem fylgir með símanum eða samþykkt varaloftnet.
Ósamþykkt loftnet, breytingar á þeim eða viðbætur, gætu skemmt tækið og
kunna að brjóta í bága við ákvæði laga um senditæki.
● Nota skal hleðslutæki innandyra.
● Alltaf skal taka öryggisafrit af gögnum sem ætlunin er að halda, t.d. tengiliðum
og dagbókaratriðum.
● Hægt er að endurstilla tækið af og til og tryggja þannig hámarksafköst með
því að slökkva á tækinu og fjarlægja rafhlöðu þess.
Þessar ábendingar eiga jafnt við um tækið, rafhlöðuna, hleðslutækið eða aðra
aukahluti. Ef tæki vinnur ekki rétt skal fara með það til næsta viðurkennda
þjónustuaðila til lagfæringar.