Nokia 7210 Supernova - Flýtiritun

background image

Flýtiritun

Í flýtiritun er notuð innbyggð orðabók sem hægt er að bæta nýjum orðum inn í.
1. Byrjaðu að skrifa orð með tökkunum 2 til 9. Ýttu aðeins einu sinni á hvern

takka fyrir hvern staf.

2. Til að staðfesta orð flettirðu til hægri eða bætir við bili.

● Ef orðið er ekki rétt skaltu ýta endurtekið á * og velja orðið af listanum.
● Ef greinarmerkið ? birtist aftan við orðið er orðið sem þú vilt slá inn ekki

að finna í orðabókinni. Orðinu er bætt inn í orðabókina með því að velja

Stafa. Sláðu inn orðið á venjulegan hátt og veldu Vista.

● Til að rita samsett orð færirðu inn fyrsta hluta orðsins og flettir til hægri

til að staðfesta. Svo slærðu inn síðari hluta orðsins og staðfestir það.

3. Byrjaðu að skrifa næsta orð.

5. Notkun valmyndarinnar

Í símanum er fjöldi valkosta (aðgerða) sem eru flokkaðir í valmyndir.
1. Veldu Valmynd til að opna valmyndina.
2. Flettu í gegnum valmyndina og veldu valkost (t.d. Stillingar).
3. Ef sú valmynd inniheldur fleiri undirvalmyndir skaltu velja undirvalmynd (t.d.

Símtals-stillingar).

4. Endurtaktu skref 3 ef undirvalmyndin inniheldur aðra undirvalmynd.