
Pakkagögn
GPRS-tækni (General Packet Radio Service) er sérþjónusta sem gerir
farsímanotendum það kleift að senda og taka á móti gögnum um net sem byggir
á Internetsamskiptareglum (Internet Protocol, IP).
Tilgreint er hvernig þjónustan er notuð með því að velja Valmynd > Stillingar >
Tengimöguleikar > Pakkagögn > Pakkagagnatenging og einn af
eftirtöldum valkostum:
Tengimöguleikar
© 2008 Nokia. Öll réttindi áskilin.
30

● Þegar þörf er — til að koma á pakkagagnatengingu þegar eitthvert forrit þarf
á henni að halda. Tengingunni er lokað um leið og forritinu.
● Sítenging — til að tengjast sjálfkrafa við pakkagagnakerfi þegar kveikt er á
símanum
Hægt er að nota símann sem mótald með því að tengja hann við samhæfa tölvu
með Bluetooth-tækni eða USB-gagnasnúru. Nánari upplýsingar fást í Nokia PC
Suite leiðbeiningunum.
Sjá „Þjónusta Nokia“, bls. 10.