Nokia 7210 Supernova - Nokia PC Suite

background image

Nokia PC Suite

Með Nokia PC Suite er t.d hægt að meðhöndla tónlistina þína, samstilla tengiliði,

dagbækur og verkefni milli símans og samhæfar tölvu eða internet-miðlara

(sérþjónusta). Þú finnur nánari upplýsingar og PC Suite á vefsíðu Nokia.

Sjá

„Þjónusta Nokia“, bls. 10.

Tengimöguleikar

© 2008 Nokia. Öll réttindi áskilin.

31

background image

11. Stillingar

Snið

Í símanum eru nokkrir stillingahópar sem kallaðir eru notandasnið. Með þeim er

hægt að velja hringitóna fyrir mismunandi tilvik og aðstæður.
Veldu Valmynd > Stillingar > Snið, sniðið sem þú vilt og svo einhvern af

eftirtöldum valkostum:
Virkja — til að virkja valið snið

Eigið val — til að breyta stillingum sniðsins

Tímastillt — til að stilla sniðið þannig að það sé virkt í tiltekinn tíma. Þegar

tíminn er liðinn verður fyrra notandasniðið, sem ekki var tímastillt, virkt.

Þemu

Þemu innihalda sérstillingar fyrir símann.
Veldu Valmynd > Stillingar > Þemu og svo einhvern af eftirtöldum valkostum:
Velja þema — Opnaðu Þemu-möppuna og veldu þema.

Hlaða niður þema — Opnar lista yfir tengla þar sem hægt er að hlaða niður

fleiri þemum.

Tónar

Hægt er að breyta tóni þess sniðs sem er í notkun:
Veldu Valmynd > Stillingar > Tónastillingar. Sömu stillingar er að finna í

valmyndinni Snið.
Ef þú velur hæsta styrk fyrir hringitóninn tekur það hann nokkrar sekúndur að ná

þeim styrk.

Skjár

Veldu Valmynd > Stillingar > Skjástillingar og svo einhvern af valkostunum

sem eru í boði:
Veggfóður — til að setja bakgrunnsmynd á biðskjáinn

Virkur biðskjár — til að ræsa, skipuleggja og sérsníða virka biðskjáinn

Leturlitur biðstöðu — til að velja lit textans sem birtist í biðstöðu

Tákn fyrir stýrihnapp — til að birta táknin fyrir flýtileiðir skruntakkans í

biðstöðu þegar slökkt er á virka biðskjánum

Upplýs. í tilkynningu — til að birta upplýsingar um ósvöruð símtöl og

skilaboðatilkynningar

Umbreytingar — til að ræsa mýkri flettingu

Skjávari — til að búa til og velja skjávara

Leturstærð — til að velja leturstærðina fyrir skilaboð, tengiliði og vefsíður