Nokia 7210 Supernova - Þráðlaus Bluetooth-tækni

background image

Símtalaskrá

© 2008 Nokia. Öll réttindi áskilin.

29

background image

Þetta tæki er samhæft við Bluetooth Specification 2.0 + EDR sem styður

eftirfarandi snið: 2.0 + EDR generic access, network access, generic object change,

advanced audio distribution, audio video remote control, handsfree, headset,

object push, file transfer, dial-up networking, SIM access og serial port . Til að

tryggja samvirkni milli annarra tækja sem styðja Bluetooth-tækni skal nota

aukahluti sem eru viðurkenndir af Nokia fyrir þessa tegund. Leita skal upplýsinga

hjá framleiðendum annarra tækja um samhæfi þeirra við þetta tæki.
Þau forrit sem notast við Bluetooth ganga á rafhlöðu símans og draga úr endingu

hennar.

Uppsetning Bluetooth-tengingar

Veldu Valmynd > Stillingar > Tengimöguleikar > Bluetooth og fylgdu

eftirfarandi skrefum:
1. Veldu Nafn símans míns og sláðu inn heiti fyrir símann.
2. Til að virkja Bluetooth-tengingu velurðu Bluetooth > Kveikja. sýnir að

Bluetooth-tenging er virk.

3. Til að tengja símann við hljóðaukahlut velurðu Tengja hljóðaukahl. og tækið

sem þú vilt tengjast.

4. Til að para símann við hvaða Bluetooth-tæki sem er innan svæðisins velurðu

Pöruð tæki > Bæta við nýju tæki.
Veldu tækið og svo Bæta við.
Sláðu inn lykilorð (allt að 16 stafir) á símann til að heimila tengingu við annað

Bluetooth-tæki.

Hafir þú áhyggjur af öryggi skaltu slökkva á Bluetooth-virkninni eða breyta

stillingunni Sýnileiki símans míns í Falinn. Samþykktu aðeins Bluetooth beiðnir

frá þeim sem þú treystir.

Tengingu tölvu við internetið
Notaðu Bluetooth-tækni til að tengja tölvuna við internetið án þess að nota PC

Suite hugbúnaðinn. Þjónustuveitan verður að styðja aðgang að internetinu og

tölvan þarf að styðja Bluetooth PAN (personal area network). Eftir tengingu við

aðgangsstað símans og pörun við tölvuna opnar síminn sjálfkrafa

pakkagagnatengingu við internetið.