Nokia 7210 Supernova - Velja flýtivísa símtala

background image

Velja flýtivísa símtala

Búðu til flýtivísa símtala með því að tengja símanúmer við númeratakkana 2 til

9.
1. Veldu Valmynd > Tengiliðir > Hraðvals-númer og flettu að takka.
2. Veldu Velja. Ef númer er þegar tengt við takkann skaltu velja Valkostir >

Breyta.

3. Sláðu inn númer eða leitaðu að tengilið.

8. Símtalaskrá

Til að skoða upplýsingar um símtöl, skilaboð, gögn og samstillingu skaltu velja

Valmynd > Notkunarskrá og svo einhvern af valkostunum sem eru í boði.

Til athugunar: Reikningar þjónustuveitunnar fyrir símtöl og þjónustu

kunna að vera breytilegir eftir eiginleikum símkerfisins, sléttun fjárhæða við gerð

reikninga, sköttum og öðru slíku.

9. Staðsetningarskrá

Símkerfið kann að senda þér staðsetningarbeiðni (sérþjónusta). Hafðu samband

við þjónustuveituna til að gerast áskrifandi að staðsetningarupplýsingum og

samþykkja sendingar þeirra.
Veldu Samþykk. eða Hafna til að samþykkja eða hafna beiðni um staðsetningu.

Ef þú missir af beiðninni samþykkir eða hafnar síminn henni sjálfkrafa í samræmi

við það sem þú hefur ákveðið með símafyrirtækinu þínu eða þjónustuveitu.
Til að skoða upplýsingar um 10 síðustu einkatilkynningar eða -beiðnir velurðu

Valmynd > Notkunarskrá > Staðsetning > Staðsetningarskrá.

10. Tengimöguleikar

Síminn býður upp á mismunandi aðgerðir til að tengjast öðrum tækjum og senda

og taka á móti gögnum.

Þráðlaus Bluetooth-tækni

Með þráðlausri Bluetooth-tækni er hægt að tengja símann, með útvarpsbylgjum,

við samhæft Bluetooth-tæki sem er í innan við 10 metra fjarlægð (32 fet).