
Flugsnið
Notaðu flugsniðið á stöðum þar sem útvarpsbylgjur eru óleyfilegar, um borð í
flugvélum eða á sjúkrahúsum, til að loka fyrir öll samskipti til og frá símanum
(útvarpsbylgjur hans). Þú hefur samt sem áður möguleika á því að spila leiki og
opna dagbókina og símaskrána.
vísirinn sést á skjánum þegar flugsniðið
er virkt.
Veldu Valmynd > Stillingar > Snið > Flug > Virkja eða Eigið val til að virkja
eða setja upp flugsniðið.
Slökkt er á flugsniðinu með því að velja aðra stillingu.
Hringja neyðarsímtal í flugsniði
Sláðu inn neyðarnúmerið, ýttu á hringitakkann og veldu Já þegar Óvirkja
flugsnið? birtist.
Viðvörun: Í flugsniðinu er ekki hægt að hringja eða svara símtölum, þar
á meðal neyðarsímtölum, eða nota aðra valkosti þar sem þörf er á tengingu við
símkerfi. Eigi að hringja verður fyrst að virkja símaaðgerðina með því að skipta
um snið. Ef tækinu hefur verið læst skal slá inn lykilnúmerið. Ef hringja þarf
neyðarsímtal meðan tækið er læst og flugsniðið er virkt kann einnig að vera hægt
að slá inn neyðarnúmerið sem er forritað í tækið í reitinn fyrir lykilnúmerið og
velja 'Hringja'. Tækið staðfestir að verið sé að gera flugsniðið óvirkt til að hefja
neyðarsímtal.