Nokia 7210 Supernova - Aðgerðir án SIM-korts

background image

Aðgerðir án SIM-korts

Hægt er að nota suma valkosti í símanum án þess að SIM-kort sé í honum, eins

og valkosti skipuleggjara og leiki. Sumir valkostir eru dekktir í valmyndunum og

þá er ekki hægt að nota.

3. Símtöl

Símtöl hringd

Hægt er að hringja á nokkra vegu:
● Sláðu inn símanúmerið, ásamt svæðisnúmeri, og ýttu á hringitakkann.

Til að hringja á milli landa skaltu ýta tvisvar sinnum á takkann * til að hringja

úr landinu (táknið + kemur í stað 00), velja landsnúmerið, svæðisnúmerið (án

0, ef þess er þörf) og síðan símanúmerið.

● Þegar ýtt er einu sinni á hringitakkann í biðstöðu opnast listi með þeim

símanúmerum sem hringt hefur verið í. Veldu númer eða nafn og ýttu á

hringitakkann.

● Hægt er að leita að nafni eða símanúmeri sem hefur verið vistað í

tengiliðum.

Sjá „Skipuleggja tengiliði“, bls. 27.

Til að stilla hljóðstyrk símtals flettirðu upp eða niður.

Móttekið símtal

Ýttu á hringitakkann til að svara símtali. Ýttu á hætta-takkann til að ljúka

símtalinu.
Ýttu á hætta-takkann til að hafna símtali. Slökkt er á hringitóninum með því að

velja Hljóð af.

Flýtivísar símtala

Hægt er að tengja símanúmer við hraðvalstakka 2 til 9.

Sjá „Velja flýtivísa

símtala“, bls. 29.

Notaðu flýtivísa símtala á einhvern eftirfarandi máta til að hringja símtal:
● Ýttu á tölutakka og síðan á hringitakkann.
● Ef Valmynd > Stillingar > Símtals-stillingar > Hraðval > Virkt er valið

heldurðu inni talnatakka.

Raddstýrð hringing

Hringdu með því að segja það nafn sem er vistað í 'Tengiliðir'.