
Stillingar
Hægt er að samskipa símann með stillingum sem eru nauðsynlegar fyrir
mismunandi þjónustu. Þjónustuveitan kann einnig að senda þér þessar stillingar.
Sjá „Stillingaþjónusta“, bls. 9.
Veldu Valmynd > Stillingar > Samskipan og svo einhvern af eftirtöldum
valkostum:
● Sjálfgefnar stillingar — til að skoða hvaða þjónustuveitur eru vistaðar í
símanum og velja eina þeirra sem sjálfgefna
● Sjálfg. á í öllum forr. — til að virkja sjálfgefna stillingu fyrir studd forrit
● Helsti aðgangsstaður — til að skoða vistaða aðgangsstaði
● Tengjast þjón.síðu — til að hlaða niður stillingum frá þjónustuveitunni
● Still. f. stjórn. tækis — til að leyfa eða leyfa ekki móttöku
hugbúnaðaruppfærslna fyrir símann. Það fer eftir símanum hvort hægt sé að
Stillingar
© 2008 Nokia. Öll réttindi áskilin.
35

velja þennan valkost.
Sjá „Hugbúnaðaruppfærsla með
ljósvakaboðum“, bls. 36.
● Eigin stillingar — til að bæta handvirkt við nýjum einkaáskriftum fyrir ýmsar
þjónustur og til að virkja þær eða eyða. Til að bæta nýjum einkareikningi við
velurðu Bæta við eða Valkostir > Bæta við nýjum. Veldu þjónustugerðina
og færðu inn hverja þá færibreytu sem þarf. Til að virkja einkareikning skaltu
skruna að honum og velja Valkostir > Virkja.