Sími
Veldu Valmynd > Stillingar > Símastillingar og úr eftirfarandi:
● Stillingar tungumáls — Til að stilla tungumál skjátexta símans velurðu
Tungumál síma. Sjálfgefið val velur tungumálið út frá upplýsingunum á SIM-
kortinu. Til að stilla tungumál fyrir raddskipanir velurðu Tungumál raddk..
● Staða minnis — til að skoða upplýsingar um hversu mikið minni er í notkun
● Sjálfvirkur takkavari — til að læsa takkaborðinu sjálfkrafa þegar að síminn
hefur ekki verið notaður í tiltekinn tíma.
● Öryggistakkavari — til að beðið sé um öryggisnúmerið þegar slökkt er á
takkavaranum
● Raddkennsl —
Sjá „Raddskipanir“, bls. 35.
● Flugkvaðning — til að vera beðin(n) um staðfestingu á að nota flugsniðið
þegar kveikt er á símanum. Slökkt er á öllum þráðlausum sendingum símans
þegar flugsniðið er valið.
● Uppfærslur — til að fá hugbúnaðaruppfærslur frá þjónustuveitunni þinni
(sérþjónusta). Það fer eftir símanum hvort hægt sé að velja þennan valkost.
Sjá „Hugbúnaðaruppfærsla með ljósvakaboðum“, bls. 36.
● Val símafyrirtækis — til að velja farsímakerfi í boði
● Kveikt á hjálp.textum — til að velja hvort síminn sýni hjálpartexta
● Opnunartónn — til að spila tón þegar þú kveikir á símanum
● Staðf. SIM-aðgerðir — (sérþjónusta)
Sjá „SIM-þjónusta“, bls. 48.
Stillingar
© 2008 Nokia. Öll réttindi áskilin.
34