Nokia 7210 Supernova - Hugbúnaðaruppfærsla með ljósvakaboðum

background image

Hugbúnaðaruppfærsla með ljósvakaboðum

Þjónustuveitan getur sent hugbúnaðaruppfærslur beint í símann þinn

(sérþjónusta). Það fer eftir símanum hvort hægt er að velja þennan valkost.
Það að hlaða niður hugbúnaði getur falið í sér stórar gagnasendingar um

farsímakerfi þjónustuveitu. Upplýsingar um gagnaflutningsgjöld fást hjá

þjónustuveitum.
Gættu að því að rafhlaða tækisins hafi næga hleðslu eða tengdu hleðslutækið

áður en uppfærslan er ræst.

Viðvörun: Ekki er hægt að nota tækið, jafnvel ekki til að hringja

neyðarsímtöl, fyrr en uppfærslunni er lokið og tækið hefur verið endurræst. Taka

skal öryggisafrit af gögnum áður en uppfærsla er samþykkt.

Stillingar fyrir uppfærslu

Það fer eftir símanum hvort hægt er að velja þennan valkost.
Til að leyfa eða banna uppfærslur á hugbúnaði og stillingum velurðu Valmynd >

Stillingar > Samskipan > Still. f. stjórn. tækis > Uppf. þjónustuveitu.

Beiðni um hugbúnaðaruppfærslu

1. Veldu Valmynd > Stillingar > Símastillingar > Uppfærslur til að biðja

um tiltækar hugbúnaðaruppfærslur frá þjónustuveitunni.

2. Veldu Um núverandi útgáfu til að birta upplýsingar um hugbúnaðarútgáfu

símans og kanna hvort nauðsynlegt sé að uppfæra hana.

3. Veldu Sækja hugb. f. síma til að hlaða niður og setja upp

hugbúnaðaruppfærslu. Fylgdu fyrirmælunum á skjánum.

4. Ef hætt var við uppsetningu eftir niðurhal velurðu Setja upp uppfærslu til að

ræsa uppsetningu.

Uppfærslan getur tekið nokkrar mínútur. Hafðu samband við þjónustuveituna ef

þú átt í vandræðum með uppfærsluna.