Öryggi
Þegar öryggisaðgerðir sem takmarka símtöl eru í notkun (svo sem útilokun,
lokaður notendahópur og fast númeraval) kann að vera hægt að hringja í
opinbera neyðarnúmerið sem er forritað í tækið.
Stillingar
© 2008 Nokia. Öll réttindi áskilin.
36
Veldu Valmynd > Stillingar > Öryggi og svo einhvern af eftirtöldum
valkostum:
● Krefjast PIN-númers eða Krefjast UPIN-númers — til að beðið sé um PIN
eða UPIN númerið í hvert skipti sem kveikt er á símanum. Á sumum SIM-kortum
er ekki hægt að slökkva á beiðni um númerið.
● PIN2-beiðni — til að velja hvort beðið sé um PIN2-númerið þegar tiltekinn
valkostur símans sem er varinn með PIN2-númerinu er notaður. Á sumum SIM-
kortum er ekki hægt að slökkva á beiðni um númerið.
● Útilokunarþjónusta — til að loka fyrir símtöl í og úr símanum (sérþjónusta).
Krafist er lykilorðs útilokunar.
● Fast númeraval — til að takmarka úthringingar í valin símanúmer ef SIM-
kortið styður aðgerðina. Þegar fast númeraval er á, eru GPRS-tengingar ekki
mögulegar nema þegar textaboð eru send um GPRS-tengingu. Í því tilviki verða
símanúmer viðtakandans og skilaboðamiðstöðvarinnar að vera á
númeralistanum í föstu númeravali.
● Lokaður not.hópur — til að tilgreina hóp fólks sem hægt er að hringja í og
sem getur hringt í þig (sérþjónusta).
● Öryggisstig — Veldu Sími til að beðið sé um öryggisnúmerið í hvert skipti
sem nýtt SIM-kort er sett í símann. Veldu Minni til að beðið sé um
öryggisnúmerið þegar minni SIM-kortsins er valið og þú vilt velja annað minni.
● Aðgangslyklar — til að breyta öryggisnúmerinu, PIN-, UPIN- eða PIN2-
númerinu, eða lykilorði útilokunar
● Númer í notkun — til að velja hvort PIN- eða UPIN-númerið eigi að vera virkt
● Heimildavottorð eða Notandavottorð — til að skoða lista yfir heimilda- eða
notandavottorð sem hlaðið hefur verið niður í símann.
Sjá „Öryggi
vafra“, bls. 44.
● Still. öryggiseiningar — til að skoða Um öryggiseiningu, virkja PIN
öryggiseiningar eða breyta PIN fyrir öryggiseiningu eða PIN fyrir undirskrift.
Sjá „Lykilorð“, bls. 8.