
Texta- eða margmiðlunarskilaboð búin til
1. Veldu Valmynd > Skilaboð > Búa til skilaboð > Skilaboð.
2. Til að bæta við viðtakendum flettirðu að reitnum Til: og slærð inn númer
viðtakanda eða tölvupóstfang, eða velur Bæta við viðtakendur úr valkostum.
Veldu Valkostir til að bæta við viðtakendum og efni og til að stilla
sendingarvalkosti.
3. Flettu að reitnum Texti: og sláðu inn texta skilaboða.
4. Til að tengja efni við skilaboð flettirðu að viðhengisslánni neðst á skjánum og
velur rétta efnið.
5. Ýttu á Senda til að senda skilaboðin.
Skilaboðategundin kemur fram efst á skjánum og breytist sjálfkrafa eftir efni
skilaboða.
Þjónustuveitur hafa mismunandi gjöld eftir tegund skilaboða. Fáðu nánari
upplýsingar hjá þjónustuveitu.