Tölvupóstur
Hægt er að opna POP3 og IMAP4 tölvupósthólf í símanum til að lesa, skrifa og
senda tölvupóst. Þetta tölvupóstforrit er ólíkt SMS-tölvupóstinum.
Áður en hægt er að nota tölvupóstinn þarf pósthólf og réttar stillingar að vera til
staðar. Tölvupóstþjónustuveitan gefur upplýsingar um tölvupóstsreikninga og
stillingar á tövupósthólfi. Hægt er að fá stillingar tölvupóstsins í stillingaboðum.
Sjá „Stillingaþjónusta“, bls. 9.