Skilaboðastillingar
Veldu Valmynd > Skilaboð > Skilaboðastill. og svo úr eftirfarandi:
Skilaboð
© 2008 Nokia. Öll réttindi áskilin.
26
● Almennar stillingar — til að vista afrit af sendum skilaboðum í símanum
þínum, til að skrifa yfir gömul skilaboð þegar skilaboðaminnið er fullt og setja
upp aðra valkosti fyrir skilaboð
● Textaboð — til að heimila skilatilkynningar, til að setja upp
skilaboðamiðstöðvar fyrir SMS og SMS tölvupóst, til að velja gerð leturstuðning
og setja upp aðra valkosti fyrir textaskilaboð
● Margmiðlunarboð — til að heimila skilatilkynningar, til að stilla útlit á
margmiðlunarskilaboðum, til að heimila móttöku margmiðlunarskilaboða og
auglýsinga og til að setja upp aðra valkosti fyrir margmiðlunarskilaboð
● Tölvupóstskeyti — til að heimila móttöku á tölvupósti, til að stilla
myndastærð í tölvupósti og til að setja upp aðra valkosti fyrir tölvupóst
● Þjónustuskilaboð — til að virkja þjónustuboð og setja upp valkosti fyrir
þjónustuboð
7. Tengiliðir
Hægt er að vista nöfn og símanúmer sem tengiliði í minni símans og á minni SIM-
kortsins og leita svo að þeim og sækja þá til að hringja símtal eða senda skilaboð.
Skipuleggja tengiliði
Veldu minnið fyrir tengiliðina
Hægt er að vista tengiliði í minni símans ásamt öðrum upplýsingum, eins og
mismunandi símanúmerum og textafærslum. Einnig er hægt að vista mynd, tón
eða myndskeið við tiltekinn fjölda tengiliða.
Á SIM-kortinu er hægt að vista nöfn ásamt einu símanúmeri. Nöfn og númer sem
vistuð eru á SIM-kortinu eru auðkennd með
.
Veldu Valmynd > Tengiliðir > Stillingar > Minni í notkun. Þegar þú velur
Sími og SIM-kort eru nýir tengiliðir vistaðir í minni símans.
Vista nöfn og númer
Til að vista nafn og símanúmer skaltu velja Valmynd > Tengiliðir > Nöfn >
Valkostir > Bæta við tengilið.
Fyrsta númerið sem er vistað er sjálfkrafa gert að sjálfgefnu númeri og auðkennt
með ramma utan um gerð þess (til dæmis ). Þegar nafn er valið úr tengiliðum
(til dæmis til að hringja í viðkomandi) er sjálfgefna númerið notað nema annað
númer sé valið.
Leit að tengilið
Veldu Valmynd > Tengiliðir > Nöfn og flettu í gegnum tengiliðalistann eða
sláðu inn fyrstu stafina í nafni tengiliðarins.