
Valkostir í símtali
Margir þeirra valkosta sem hægt er að velja meðan á símtali stendur flokkast
undir sérþjónustu. Upplýsingar um framboð fást hjá þjónustuveitunni.
Veldu Valkostir meðan á símtali stendur. Tiltækir valkostir kunna einnig að
innihalda eftirfarandi:
Valkostir fyrir símtöl eru Hljóðnemi af, Hljóðnemi á, Tengiliðir, Valmynd, Læsa
takkaborði, Taka upp, Skýrleiki tals, Hátalari eða Símtól.
Valkostir símkerfis eru Svara, Hafna, Í bið eða Úr bið, Ný hringing, Bæta í
símafund, Leggja á, Ljúka öllum og eftirfarandi:
● Senda DTMF-tóna — til að senda tónastrengi
● Skipta — til að skipta á milli virks símtals og símtals í bið
● Flytja — til að tengja saman símtal í gangi og símtal í bið og aftengjast í
leiðinni
● Símafundur — til að koma á símafundi
● Einkasamtal — til að tala einslega við þátttakanda í símafundi
Viðvörun: Ekki skal halda tækinu nálægt eyranu þegar hátalarinn er
notaður því hljóðstyrkur getur verið mjög mikill.
4. Textaritun
Textastillingar
Hægt er að slá inn texta (t.d. þegar textaskilaboð eru skrifuð) á hefðbundinn hátt
eða með flýtiritun.