Símtöl
© 2008 Nokia. Öll réttindi áskilin.
19
Þar sem raddskipanir velta á rödd viðkomandi verðurðu að velja Valmynd >
Stillingar > Símastillingar > Stillingar tungumáls > Tungumál raddk. og
tungumálið áður en þú notar raddstýrða hringingu.
Til athugunar: Notkun raddmerkja getur verið erfið í hávaðasömu
umhverfi eða í neyðartilvikum, því ætti ekki að treysta eingöngu á raddstýrt val
við allar aðstæður.
1. Haltu hægri valtakkanum inni þegar síminn er í biðstöðu. Stutt hljóðmerki
heyrist og Tala núna birtist.
2. Segðu nafn þess sem þú vilt hringja í. Ef síminn ber kennsl á skipunina birtir
hann þær færslur sem passa við hana í lista. Síminn spilar raddskipun
færslunnar sem er efst á listanum. Ef hún er ekki rétt skaltu fletta að annarri
færslu.