Nokia 7210 Supernova - Upplýsingar um rafhlöðu og hleðslutæki

background image

Upplýsingar um rafhlöðu og hleðslutæki

Tækið gengur fyrir endurhlaðanlegri rafhlöðu. Þetta tæki er ætlað til notkunar

með BL-4CT rafhlöðu. Tækið er ætlað til notkunar þegar það er hlaðið með

eftirfarandi hleðslutækjum: AC-4. Hægt er að hlaða og afhlaða rafhlöðu nokkur

hundruð sinnum en að því kemur að hún gengur úr sér. Þegar tal- og biðtími er

orðinn mun styttri en eðlilegt er skal skipta um rafhlöðu. Aðeins skal nota

rafhlöður sem samþykktar eru af Nokia og aðeins skal endurhlaða rafhlöðu með

hleðslutækjum sem Nokia hefur samþykkt til notkunar með þessu tæki. Notkun

ósamþykktra rafhlaða eða hleðslutækja getur valdið eldhættu, sprengingu, leka

eða haft aðra áhættu í för með sér.
Númer hleðslutækisins getur verið mismunandi eftir klónni sem er notuð. Gerð

klónnar er auðkennt af einu af eftirfarandi: E, EB, X, AR, U, A, C eða UB.
Ef verið er að nota rafhlöðu í fyrsta skipti, eða ef rafhlaðan hefur ekki verið notuð

í langan tíma, kann að vera nauðsynlegt að tengja hleðslutækið, aftengja það

síðan og tengja það aftur til að hefja hleðsluna. Ef rafhlaðan er alveg tóm geta

liðið nokkrar mínútur þar til hleðsluvísirinn birtist á skjánum eða þar til hægt er

að hringja.
Alltaf skal slökkva á tækinu og aftengja hleðslutækið áður en rafhlaðan er

fjarlægð.
Taka skal hleðslutækið úr sambandi við rafmagnsinnstungu og tækið þegar það

er ekki í notkun. Ekki má hafa fullhlaðna rafhlöðnu í sambandi við hleðslutæki

þar sem ofhleðsla getur stytt líftíma hennar. Fullhlaðin rafhlaða tapar hleðslunni

smátt og smátt ef hún er ekki í notkun.
Æskilegast er að rafhlaðan sé alltaf höfð í hita á bilinu frá 15°C að 25°C (frá 59°F

að 77°F). Of mikill hiti eða kuldi draga úr endingu og líftíma rafhlöðu. Tæki með

heitri eða kaldri rafhlöðu kann að hætta að starfa tímabundið. Einkum hefur

mikið frost takmarkandi áhrif á rafhlöður.
Gæta skal þess að valda ekki skammhlaupi í rafhlöðunni. Skammhlaup getur orðið

fyrir slysni þegar málmhlutur, svo sem mynt, bréfaklemma eða penni veldur

beinni tengingu milli + og - skautanna á rafhlöðunni. (Þau líta út eins og

© 2008 Nokia. Öll réttindi áskilin.

49

background image

málmrendur á rafhlöðunni.) Til dæmis getur þetta gerst þegar vararafhlaða er

höfð í vasa eða tösku. Skammhlaup milli skautanna getur valdið skemmdum á

rafhlöðunni eða hlutnum sem veldur tengingunni.
Ekki má fleygja rafhlöðum í eld þar sem þær geta sprungið. Rafhlöður geta einnig

sprungið ef þær skemmast. Farga skal rafhlöðum í samræmi við staðbundin lög

og reglugerðir. Skila skal þeim í endurvinnslu þegar mögulegt er. Ekki skal fleygja

þeim með heimilisúrgangi.
Ekki skal taka sundur, skera, opna, merja, beygja, afmynda, gata eða tæta

rafhlöður. Ef rafhlaða lekur má vökvi hennar ekki komast í snertingu við húð eða

augu. Ef slíkt kemur fyrir skal skola húð eða augu umsvifalaust með vatni, eða

leita til læknis.
Ekki skal breyta, endurhanna, reyna að setja hluti í rafhlöðuna sem ekki eiga að

vera þar, dýfa rafhlöðunni í vatn eða aðra vökva, eða bleyta hana.
Röng notkun rafhlöðunnar hefur í för með sér eld- eða sprenghættu, eða aðra

hættu. Ef þú missir tækið eða rafhlöðuna, og þá sérstaklega á hart yfirborð, og

telur að rafhlaðan hafi skemmst, skaltu fara með hana til þjónustuvers til

skoðunar áður en þú heldur áfram að nota hana.
Aðeins skal nota rafhlöðuna til þess sem hún er ætluð. Aldrei skal nota skemmt

hleðslutæki eða rafhlöðu. Geyma skal rafhlöðuna þar sem lítil börn ná ekki til.