Hvað ef rafhlaðan er ekki ósvikin?
Ef þú getur ekki staðfest að Nokia-rafhlaðan með heilmyndinni á miðanum sé
ósvikin Nokia-rafhlaða skaltu ekki nota rafhlöðuna. Farðu með hana til næsta
viðurkennda þjónustu- eða söluaðila Nokia. Notkun rafhlaðna sem eru ekki
samþykktar af framleiðanda getur verið hættuleg. Hún getur jafnframt leitt til
þess að tækið og aukahlutir þess virki ekki sem skyldi eða skemmist. Notkun
þeirra kann jafnframt að ógilda allar þær samþykktir eða ábyrgðir sem eiga við
tækið.
Nánari upplýsingar um ósviknar Nokia rafhlöður er að finna á www.nokia.com/
battery.