Nokia 7210 Supernova - Viðbótarsteríó

background image

Viðbótarsteríó

Viðbótarsteríó skapar víðari steríóhljóm þegar steríóhöfuðtól er notað.
Til að kveikja á því velurðu Valmynd > Miðlar > Steríómögnun.

15. Vefur

Þú getur fengið aðgang að ýmiss konar netþjónustu í vafra símans. Útlit vefsíðna

getur verið breytilegt eftir skjástærðinni. Hugsanlega er ekki hægt að skoða allt

efni internetsíðna.

Mikilvægt: Aðeins skal nota þjónustu sem er treyst og sem veitir nægilegt

öryggi og vörn gegn skaðlegum hugbúnaði.
Upplýsingar um mismunandi þjónustu, verð og leiðbeiningar fást hjá

þjónustuveitunni.
Þú getur fengið nauðsynlegar stillingarnar fyrir vefskoðun í stillingaboðum frá

þjónustuveitunni.
Þjónustan er sett upp með því að velja Valmynd > Vefur > Vefstillingar >

Stillingar samskipanaog síðan stillingu og reikning.

Tengst við þjónustu

Þjónustan er tengd með því að velja Valmynd > Vefur > Heim; eða í biðham

halda inni 0.
Til að velja bókmerki velurðu Valmynd > Vefur > Bókamerki.
Til að velja síðasta veffangið sem var notað velurðu Valmynd > Vefur > Síðasta

veffang.
Til að slá inn veffang þjónustu velurðu Valmynd > Vefur > Fara á veffang.

Sláðu inn veffangið og veldu Í lagi.
Eftir að þú hefur tengst þjónustu geturðu hafið skoðun á síðum hennar. Virkni

takkanna á símanum er mismunandi eftir þjónustuveitum. Fylgdu

textaleibeiningunum á símaskjánum. Nánari upplýsingar fást hjá þjónustuveitu.