Nokia 7210 Supernova - Tónlistar­valmynd

background image

Tónlistarvalmynd

Þú getur fengið aðgang að þeirri tónlist og myndskrám sem þú hefur vistað í

minni símans eða á minniskortinu, hlaðið niður tónlist eða myndskeiðum af

netinu eða skoðað samhæfar straumspilunarhreyfimyndir á netþjóni

(sérþjónusta).
Til að hlusta á tónlist eða horfa á myndskeið velurðu skrá í Spilunarlistar,

Flytjendur, Plötur eða Stefnur og velur svo Spila.
Til að hlaða niður skrám af netinu velurðu Valkostir > Hlaða niður og vefsíðu.
Til að uppfæra tónlistarsafnið eftir að þú hefur bætt við skrám velurðu

Valkostir > Uppfæra safn.

Spilunarlisti búinn til

Til að skoða spilunarlista með tónlistarvali þínu skaltu gera eftirfarandi:
1. Veldu Spilunarlistar > Nýr spilunarlisti og sláðu inn heiti spilunarlistans.
2. Bættu við tónlistarskrá eða myndskeiði af þeim listum sem birtir eru.
3. Veldu Lokið til að geyma listann.

Stilla straumspilunarþjónustu

Hægt er að fá straumstillingar í stillingaboðum frá þjónustuveitunni.

Sjá

„Stillingaþjónusta“, bls. 9.

Einnig er hægt að færa stillingarnar inn handvirkt.

Sjá

„Stillingar“, bls. 35.

Stillingarnar eru teknar í notkun á eftirfarandi hátt:
1. Veldu Valkostir > Hlaða niður > Straumstillingar > Samskipun.
2. Veldu þjónustuveitu, Sjálfgefnar, eða Eigin stillingar fyrir straumspilun.
3. Veldu Áskrift og reikning fyrir straumspilunarþjónustu í virku stillingunni.