
Tónlistarspilari
Í símanum er tónlistarspilari til að hlusta á lög eða aðrar MP3- eða AAC-hljóðskrár
sem hefur verið hlaðið niður af internetinu eða fluttar í símann með Nokia PC
Suite.
Sjá „Nokia PC Suite“, bls. 31.
Þú getur einnig skoðað myndskeið sem þú
hefur tekið upp eða hlaðið niður.
Þeim tónlistar- og hreyfimyndaskrám sem eru vistaðar í tónlistarmöppunni í
minni símans eða á minniskortinu er sjálfkrafa bætt við tónlistarsafnið.
Veldu Valmynd > Miðlar > Tónlistarspilari til að opna spilarann.