
Útvarp
FM-útvarpið þarf annað loftnet en það sem er í þráðlausa tækinu. Samhæft
höfuðtól eða aukahlutur þarf að vera tengdur tækinu ef FM-útvarpið á að virka
rétt.
Viðvörun: Hlusta skal á tónlist með hæfilegum hljóðstyrk. Stöðug áraun
af háum hljóðstyrk getur skaðað heyrn. Ekki skal halda tækinu nálægt eyranu
þegar hátalarinn er notaður því hljóðstyrkur getur verið mjög mikill.
Veldu Valmynd > Miðlar > Útvarp.
Flettu upp eða niður til að stilla hljóðstyrkinn.
Til að nota myndrænu takkana á skjánum flettirðu upp, niður, til vinstri eða
hægri.
Slökkt er á útvarpinu með því að halda inni hætta-takkanum.