Um tækið
Þráðlausa tækið sem er lýst í þessari handbók er samþykkt til notkunar í GSM 900,
1800 og 1900 MHz kerfi . Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar um símkerfi.
Við notkun þessa tækis skal hlíta öllum lögum og virða staðbundnar venjur,
einkalíf og lögmæt réttindi annarra, þ.m.t. höfundarrétt.
Varnir vegna höfundarréttar geta hindrað afritun, breytingu eða flutning sumra
mynda, tónlistar og annars efnis.
Tækið getur innihaldið bókamerki og tengla fyrir vefsíður þriðju aðila. Einnig er
hægt að skoða vefsíður þriðju aðila í tækinu. Vefsíður þriðju aðila tengjast ekki
Nokia og Nokia hvorki hvetur til né tekur ábyrgð á þeim. Ef þú vilt heimsækja
slíkar síður skaltu beita öryggisráðstöfunum.
Viðvörun: Við notkun allra aðgerða í þessu tæki, annarra en vekjara, þarf
að vera kveikt á tækinu. Ekki skal kveikja á tækinu þegar notkun þráðlausra tækja
getur valdið truflun eða hættu.
Muna skal að taka öryggisafrit eða halda skrá yfir allar mikilvægar upplýsingar
sem geymdar eru í tækinu.
Þegar tækið er tengt öðru tæki skal lesa notendahandbók þess vandlega, einkum
upplýsingar um öryggi. Ekki má tengja saman ósamhæf tæki.