Nokia 7210 Supernova - Stafræn réttindi

background image

Stafræn réttindi

Eigendur efnis kunna að nota mismunandi gerðir stafrænnar réttindatækni (DRM)

til að vernda hugverkarétt sinn, þ.m.t. höfundarrétt. Þetta tæki notar

mismunandi gerðir stafrænnar tækni til að opna stafrænt varið efni. Með þessu

tæki er hægt að opna efni sem er verndað með WMDRM 10, OMA DRM 1.0, OMA

DRM 1.0 framsendum lás og OMA DRM 2.0. Ef tiltekinn stafrænn hugbúnaður nær

ekki að verja efni kunna efniseigendur að biðja um að geta slíks hugbúnaðar til

að opna nýtt efni sem er varið með stafrænum réttindum sé endurvakin. Slíkt

kann einnig að hindra endurnýjun þess stafræns varins efnis sem er þegar í

tækinu. Endurvakning slíks hugbúnaðar hefur ekki áhrif á notkun efnis sem er

verndað með öðrum gerðum stafrænna réttinda eða notkun efnis sem ekki er

verndað með stafrænum réttindum.
Efni sem er varið með stafrænum réttindum (DRM) fylgir opnunarlykill sem

tilgreinir hvernig hægt er að nota efnið.
Ef tækið er með OMA DRM-varið efni skal nota öryggisafritunaraðgerðina í Nokia

PC Suite til að taka öryggisafrit af bæði opnunarlyklunum og efninu.Ef notaðar

eru aðrar flutningsaðferðir er ekki víst að opnunarlyklarnir, sem þarf að

endursetja ásamt OMA DRM-vörðu efni eftir að minni tækisins er forsniðið, verði

fluttir með efninu. Einnig gæti þurft að endursetja opnunarlyklana ef skrár í

tækinu skemmast.
Ef tækið inniheldur WMDRM-varið efni glatast það efni ásamt opnunarlyklum þess

ef minni tækisins er forsniðið. Einnig gætu opnunarlyklarnir og efnið glatast ef

skrár í tækinu skemmast. Glatist opnunarlyklarnir eða efnið getur það takmarkað

möguleikann á að nota efnið aftur. Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.

Almennar upplýsingar

© 2008 Nokia. Öll réttindi áskilin.

11

background image

2. Tækið tekið í notkun

SIM-kort og rafhlaða sett í

Alltaf skal slökkva á tækinu og aftengja hleðslutækið áður en rafhlaðan er

fjarlægð.
Þessi sími er ætlað til notkunar með BL-4CT rafhlöðu. Notaðu alltaf samþykktar

rafhlöður frá Nokia.

Sjá „Leiðbeiningar um sannprófun á rafhlöðum frá

Nokia“, bls. 50.

SIM-kortið og snertur þess geta hæglega skemmst ef kortið rispast eða bognar.

Því þarf að fara varlega með kortið þegar það er sett í eða tekið úr.
1. Ýttu á

sleppitakkann til að lyfta bakhliðinni og taka hana af. Taktu rafhlöðuna úr til

að aflæsa SIM-kortsfestingunni.

2. Settu SIM-kortið í þannig að

snerturnar snúi niður í festingunni.