
Sérþjónusta
Til að hægt sé að nota símann verður áskrift að þjónustuveitu fyrir þráðlausa síma
að vera fyrir hendi. Margir af valkostum símans flokkast undir sérþjónustu. Ekki
er hægt að nota þessa valkosti í öllum símkerfum. Í öðrum símkerfum kann
jafnframt að vera farið fram á sérstaka skráningu fyrir þessari þjónustu.
Leiðbeiningar ásamt upplýsingum um gjald fyrir þjónustuna fást hjá
þjónustuveitu. Sum símkerfi kunna að hafa takmarkanir sem hafa áhrif á hvernig
hægt er að nota sérþjónustu. Sum símkerfi styðja t.d. ekki alla séríslenska bókstafi
og þjónustu.
Þjónustuveitan kann að hafa beðið um að tilteknar aðgerðir væru hafðar óvirkar
eða ekki gerðar virkar í tækinu. Ef svo er birtast þær ekki í valmynd tækisins.
Tækið kann einnig að hafa verið sérstillt, t.d. kann heitum, röð og táknum
valmynda að hafa verið breytt. Þjónustuveitan gefur nánari upplýsingar.