
Hugbúnaðaruppfærslur
Nokia kann að framleiða hugbúnaðaruppfærslur með nýjum möguleikum,
bættum aðgerðum eða aukinni virkni. Þú getur nálgast þessar uppfærslur með
forritinu Nokia Software Updater PC. Til að uppfæra hugbúnað tækisins þarftu að
hafa Nokia Software Updater forritið og samhæfa tölvu með Microsoft Windows
2000, XP eða Vista stýrikerfi, háhraðatengingu og samhæfa gagnasnúru til að
tengja tækið við tölvuna.
Nánari upplýsingar um Nokia Software Updater forritið er að finna á
www.nokia.com/softwareupdate eða vefsíðu Nokia í þínu landi. Þar er einnig
hægt að hlaða niður forritinu.
Ef símkerfið styður hugbúnaðaruppfærslur með ljósvakaboðum kanntu einnig að
geta beðið um uppfærslur með símanum.
Sjá „Hugbúnaðaruppfærsla með
ljósvakaboðum“, bls. 36.
Mikilvægt: Aðeins skal nota þjónustu sem er treyst og sem veitir nægilegt
öryggi og vörn gegn skaðlegum hugbúnaði.