Nokia 7210 Supernova - Öryggi

background image

Öryggi

Lesið þessar einföldu leiðbeiningar. Sé þeim ekki fylgt getur það verið hættulegt

eða varðað við lög. Lesa skal alla notendahandbókina til að fá nánari upplýsingar.

ÖRYGGI ÞEGAR KVEIKT ER Á TÆKINU
Ekki má kveikja á tækinu þar sem notkun þráðlausra síma er bönnuð

eða þar sem hún kann að valda truflunum eða hættu.
UMFERÐARÖRYGGI GENGUR FYRIR
Fara skal að öllum staðbundnum lögum. Ætíð skal hafa hendur frjálsar

til að stýra ökutækinu við akstur. Umferðaröryggi skal ganga fyrir í

akstri.
TRUFLUN
Öll þráðlaus tæki geta verið næm fyrir truflunum, sem getur haft áhrif

á virkni þeirra.
SLÖKKT Á TÆKINU Á AFMÖRKUÐUM SVÆÐUM
Virða skal allar takmarkanir. Slökkva skal á tækinu um borð í flugvélum,

nærri lækningatækjum, eldsneytisstöðvum, efnaverksmiðjum eða

svæðum þar sem verið er að sprengja.
VIÐURKENND ÞJÓNUSTA
Aðeins viðurkennt starfsfólk má setja upp eða gera við þessa vöru.

AUKAHLUTIR OG RAFHLÖÐUR
Aðeins má nota samþykkta aukahluti og rafhlöður. Ekki má tengja

saman ósamhæf tæki.
VATNSHELDNI
Tækið er ekki vatnshelt. Halda skal því þurru.

© 2008 Nokia. Öll réttindi áskilin.

7